Færsluflokkur: Bloggar

Dýrahald og flugeldar !!

 af vef mast.is

Um áramót hafa iðulega orðið slys og óhöpp vegna ofsahræðslu dýra við flugelda og hávaðann frá þeim. Ábyrgð þeirra sem skjóta upp flugeldum er mikil, að valda ekki nálægum dýrum ótta og angist og dýraeigendur þurfa að gæta þess að dýrin fari ekki sjálfum sér eða öðrum að voða. Ótti við skyndileg hávær hljóð háir fjölda gæludýra og ekki síður hrossa. Flest dýr verða vör um sig við þann hávaða og ljósagang sem flugeldum fylgja en sum verða ofsahrædd. Mörg dæmi eru um að hross á útigangi hafi algerlega tryllst, brotist gegnum girðingar og flúið til fjalls og ekki fundist fyrr en löngu síðar, oft illa útleikin. Hross hafa einnig valdið alvarlegum umferðarslysum við slíkar aðstæður, þegar þau æða yfir girðingar og inn á þjóðvegi. 

Almennar ráðleggingar

Ýmislegt er til ráða til að draga úr óttanum. Hestum ber að gefa vel, hafa ljós kveikt, til að draga úr áhrifum blossanna, eða byrgja glugga, og ráð er að hafa útvarp í gangi til að jafna út hávaðann. Eigendur ættu að vitja hrossanna um leið og mestu lætin eru yfirstaðin. Útigangshrossum á að gefa vel og halda þeim á kunnuglegum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þau. Hundum og köttum ber að halda innandyra og gefa þeim tækifæri að leita sér skjóls þar sem hávaðinn og ljósagangurinn er minnstur. 

Við flugeldaótta er sem sagt ýmislegt til ráða og gott er að huga að ráðstöfunum með nokkrum fyrirvara því nokkuð hefur borið á þeim ósið á undanförnum árum að þessi skot eru byrjuð löngu fyrir áramót og halda jafnvel áfram dagana þar á eftir. Dagarnir skömmu fyrir áramót geta því gefið vísbendingar um hvernig dýrin munu bregðast við. Það allra mikilvægasta er þó að sjá til þess að dýrin séu í öruggu umhverfi og njóti stuðnings eigenda sinna.

Notkun róandi lyfja

Í stöku tilvikum getur reynst nauðsynlegt að gefa dýrum róandi lyf, en það skal þó aldrei gert nema í samráði við dýralækni. Ekki hafa öll róandi lyf slævandi áhrif á skynfæri þannig að þrátt fyrir að dýrin virðist slaka á geta þau upplifað óttann en ekki tjáð hann vegna lyfjanna. Aukaverkanir geta fylgt notkun róandi lyfja og aldrei má skilja dýr eftir ein hafi þeim verið gefin slík lyf. 

 



Jólakveðja

Taumur félag áhugafólks um betri hundahald í Árborg og nærsveitum

sendir bestu óskir um Gleðileg jól og farsælt nýtt hunda ár :)

 


Uppskeruhátíð HRFÍ


4. janúar 2013


Uppskeruhátíð HRFÍ verður haldið föstudaginn 4. janúar í félagsheimili Fáks í Reykjavík. Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00. Björn Ólafsson stjórnarmeðlimur sér um veitingarnar og stjórnarmenn HRFÍ sjá um möndlugjöf og happadrætti. Gestir koma sjálfir með sín drykkjarföng. Stigahæsti ræktandi ársins verður heiðraður og lifandi tónlist verður spi...luð undir matnum.
Hámarksfjöldi er 180 manns. Miðasala fer fram á skrifstofu HRFÍ og lýkur 2. janúar. Verð á mann er kr. 1500. Einn happadrættismiði fæst fyrir framvísun aðgöngumiða en einnig verður hægt að kaupa búnt með 5 miðum á 1500kr.
Vakin er athygli á því að skrifstofan verður lokuð á milli jóla- og nýárs.


Alþjóðleg hundasýning HRFÍ


23. - 24. febrúar 2013

Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin helgina 23. - 24. febrúar 2013.

Skráningafresti lýkur föstudaginn 25. janúar 2013. - Skráningar sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Dómarar að þessu sinni eru:  Göran Bodegard (Svíþjóð), Niksa Lemo (Króatía), Ann Ingram (Írland), Nina Karlsdottir (Svíþjóð), Hanne laine Jensen (Danmörk) ofl.

Vegna athugasemda vegna öryggi kreditkorta hefur félagið ákveðið að taka á móti skráningum (fyrir hunda og unga sýnendur) í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu). 

Félagsmönnum býðst einnig, á eigin ábyrgð, að senda skráningu á sýningu í gegnum tölvupóst með nafni hunds í ættbók og ættbókanúmeri (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu svo skráning sé tekin gild).  Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. 
Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu.

Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.

Breytingin mun hafa í för með sér að tafir geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.

Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. 11. janúar 2013.

Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.


Jólahundagöngu á Selfossi lokið !

Skemmtilegri jóla hunda göngu lokið á Selfossi

endaði með piparkökum og jólaöli í boði Paradísarhænubóndans :)


Nýjar myndir hér frá hunda hlýðni námskeiði !!

 

Nýjar myndir hér frá hunda hlýðni námskeiði !!


Jóla hundaganga !

 

Jólahundaganga á Selfossi nk laugard 08.12. kl 11 hittumst á planinu við Rúmfatalagerinn

Allir velkomnir og taki með sér góða skapið gengið verður Langholt / Austurvegur, að göngu lokinni

verður boðið uppá jólaöl og piparkökur :)

 

Göngustjóri.


Kvíðagelt


Kvíðagelt, ýlfur eða öskur er aðeins ein af birtingarmyndum aðskilnaðarkvíða. Aðskilnaðarkvíði er flókið hegðunarferli, - skelfing eða ofsahræðsla gagntekur hundinn. Honum getur fylgt hegðun þar sem hlutir eru skemmdir, hegðun þar sem ótrúlegum kröftum er beytt til að losna úr búri, herbergi eða afmörkuðum stað, og/eða hundur pissar eða gerir stykkin sín þar sem hann er ekki vanur því (innandyra). Til að leiðrétta kvíðagelt, ýlfur eða öskur þarf að breyta eða lagfæra það sem orsakar kvíðann.

Leiðrétting:
Þó hægt sé að breyta kvíða með þjálfun þar sem hundur er vaninn hægt og rólega með sífelldri endurtekningu við því sem hann hræðist, þá þarf oft að beita annarri hjálp eða aðstoð við að ná að lagfæra ástandið. Þjálfunarferli frá hundaþjálfara eða atferlisþjálfa geta hjálpað mikið til en stundum þarf nota DAP eða kvíðastillandi lyf til að komast yfir ákveðinn þröskuld svo hundur geti slakað á. Ekki bíða með að leita aðstoðar fagfólks áður en ástandið verður svo slæmt.

Gelt er ekki alltaf slæmt.
Röddin í hundi getur verið nytsamleg, sérstaklega geltið sem lætur okkur vita að hundur þurfi að fara úr eða vilji koma inn. Sumir þjónustuhundar eru þjálfaðir í að gelta til að ná athygli eigenda sinna. Hundar vara okkur við ókunnugum og láta vita af mögulegum hættum. Ég man eftir nokkrum dæmum þegar gelt hundanna minna þjónaði góðum tilgangi, eins og þegar hestarnir sluppu úr gerðinu sínu. Ég minnist þess þegar litli pomerianinn minn stóð fyrir framan hryssu til að varna því að hún færi út um hlið sem hafði óvart verið skilið eftir opið. Þegar skræk röddin í tíkinni minni verður til þess að ég gnísti tönnum, minni ég mig á það að það munu koma tímar þegar hún mun líka nota þessa sömu rödd til að segja mér eitthvað áríðandi og ég muni verða ánægð að hún hafi þessa rödd.


Alþjóðleg hundasýning HRFÍ :)

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ
17.-18. nóvember 2012
Klettagörðum 6, 104 Reykjavík

Helgina 17. – 18. nóvember mæta 785 hreinræktaðir hundar af 80 hundategundum í dóm á alþjóðlega hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands. Sýningin er haldin í Klettagörðum 6 og hefjast dómar kl. 9:00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi. Úrslit á báða hefjast um kl. 14:30 og þá kemur í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara. Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu.

Sex dómarar frá fimm löndum; Danmörku, Finnlandi, Írlandi, Svíþjóð og Serbíu dæma í sex sýningarhringjum samtímis.

Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi.
Áhorfendum er leyfilegt að koma með sína eigin stóla og sitja við sýningahringi.

Keppni ungra sýnenda
Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu sinni taka 32 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda, laugardaginn 18. nóvember kl.12:00. Dómari í þeirri keppni er John Walsh frá Írlandi.

Dagskrá í úrslitum

Laugardagur
kl. 14:30
Þjónustuhundur ársins heiðraður
Afrekshundur ársins heiðraður
Besti hvolpur dagsins 4-6 mán.
Besti hvolpur dagsins 6-9 mán.
Tegundahópur 1
Tegundahópur 4/6
Tegundahópur 7
Tegundahópur 9
Besti afkvæmahópur dagsins
Besti ræktunarhópur dagsins

Sunnudagur
kl. 14:30
Stigahæstu ungu sýnendur ársins
Besti hvolpur dagsins 4-6 mán.
Besti ræktunarhópur dagsins
Besti afkvæmahópur dagsins
Besti hvolpur dagsins 6-9 mán.
Tegundahópur 8
Tegundahópur 10
Tegundahópur 5
Tegundahópur 3
Tegundahópur 2
Besti öldungur sýningar
Stigahæsti öldungur ársins heiðraður
Besti hundur sýningar
Stigahæsti hundur árins heiðraður


Síðasta hundafimi mót ársins 24 nóv 2012

 
Skráning á síðasta hundafimimót ársins er hafin.   Mótið verður haldið í reiðhöll Gusts í kópavogi þann 24 nóv 2012 frá kl 13-16.    Síðasti skráningar dagur er sunnudagskvöldið 18 nóv.    Skráningu skal sent í netfangið hundafimi@hotmail.com.   Koma þarf fram nafn hunds og eigenda, númer bókar,  og í hvaða keppnir á að fara að keppa.    Kostnaður á 1 braut er 1500 kr ,  kostnaður á 2 brautum er 2500 kr.    Greiða þarf fyrir keppnina á skrifstofu HRFI og senda kvittun á hundafimi@hotmail.com til að skráning sé gild.    Hlakka til að sjá ykkur.
 
ATH það eru allir velkomnir að fylgjast með :)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband