Alþjóðleg hundasýning HRFÍ


23. - 24. febrúar 2013

Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin helgina 23. - 24. febrúar 2013.

Skráningafresti lýkur föstudaginn 25. janúar 2013. - Skráningar sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Dómarar að þessu sinni eru:  Göran Bodegard (Svíþjóð), Niksa Lemo (Króatía), Ann Ingram (Írland), Nina Karlsdottir (Svíþjóð), Hanne laine Jensen (Danmörk) ofl.

Vegna athugasemda vegna öryggi kreditkorta hefur félagið ákveðið að taka á móti skráningum (fyrir hunda og unga sýnendur) í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu). 

Félagsmönnum býðst einnig, á eigin ábyrgð, að senda skráningu á sýningu í gegnum tölvupóst með nafni hunds í ættbók og ættbókanúmeri (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu svo skráning sé tekin gild).  Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. 
Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu.

Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.

Breytingin mun hafa í för með sér að tafir geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir.

Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. 11. janúar 2013.

Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband