Innflutningur hunda og katta :)

af vef mast.is

  • Sækja um innflutningsleyfi til Matvælastofnunar. Dýrið þarf að vera örmerkt. 

  • Greiða staðfestingargjald, þegar tilkynning hefur borist. 
  • Hafa samband við dýralækni í útflutningslandinu. – Skoða vel þær kröfur sem gerðar eru um bólusetningar og sýnatökur. Athuga sérstaklega tímamörkin sem gefin eru upp. 
  • Athuga fæðingardag dýrsins. – Lágmarksaldur fyrir dýr frá löndum þar sem hundaæði fyrirfinnst ekki er 5 mánuðir. Dýr sem koma frá löndum þar sem hundaæði fyrirfinnst geta ekki verið yngri en 7 mánaða við komuna til landsins, séu þau bólusett gegn hundaæði við þriggja mánaða aldur. 
  • Panta pláss fyrir hundinn/köttinn í einangrunarstöð. – Dýr koma í einangrunarstöðvarnar einu sinni á mánuði þ.e.a.s. eitt holl á mánuði í hvora stöð. Um er að ræða fyrirfram ákveðna komudaga. Ekki hægt að senda dýr til landsins á öðrum dögum. Oftast er tekið á móti dýrum á 3 daga tímabili, fyrir hvora stöð. Eftir það lokast einangrunin og tekur hún ekki á móti dýrum aftur fyrr en viðkomandi holl hefur verið útskrifað. Upplýsingar um dagsetningar veita starfsmenn einangrunarstöðvanna (Einangrunarstöð Reykjanesbæjar www.einangrun.is og Hvatastaðir ehf. Einangrunarstöð gæludýra í Hríseywww.hvatastadir.is). Hafa skal í huga að bóka þarf pláss í einangrun með góðum fyrirvara. 
  • Panta flug. – Keflavíkurflugvöllur er eini samþykkti innflutningsstaðurinn fyrir gæludýr.
  • Bólusetja gegn hundaæði (komi dýrið frá landi þar sem hundaæði fyrirfinnst.). 
  • Taka blóðsýni og mæla mótefni gegn hundaæði. – Í fyrsta lagi 30 dögum eftir bólusetninguna (komi dýrið frá landi þar sem hundaæði fyrirfinnst). 
  • Athuga bólusetningarstöðu. – 30 dagar skulu líða frá síðustu bólusetningu þar til dýrið er flutt inn (gildir um bólusetningar gegn öllum sjúkdómum nema hundaæði (sjá nánar í Samantekt um bólusetningar, rannsóknir og meðhöndlanir). 
  • Rannsóknir. – Þetta þarf að gera síðustu 30 dagana fyrir innflutning (ath.það getur tekið einhverja daga að fá niðurstöður úr rannsóknum, þetta þarf því að skipuleggja í samráði við dýralækni). 
  • Heilbrigðisvottorð, heilbrigðisskoðun og meðhöndlun – Á síðustu 10 dögum fyrir innflutning skal dýralæknir fylla út heilbrigðisvottorðið, heilbrigðisskoða dýrið, meðhöndla gegn sníkjudýrum og eyrnamaur ef þörf er á. Einungis þaueyðublöð sem gefin eru út af Matvælastofnun eru tekin gild. 

  • Útvega búr fyrir flutninginn. – Búrið skal vera það stórt að dýrið geti staðið, legið og snúið sér við í því. Búrið á að vera úr efni sem auðvelt er að þrífa og sótthreinsa, ekki úr viði. 
  • Að minnsta kosti 5 sólarhringum fyrir áætlaðan komudag skal senda vottorð til Matvælastofnunar til samþykktar (faxnúmer: +354 530 4801, netfang: mast@mast.is). Athugið að vottorð séu rétt fyllt út og að komutími og flugnúmer komi skýrt fram. Einnig er mikilvægt að hafa rétt símanúmer og netfang innflytjanda eða umboðsmanns á vottorðinu. 
  • Frumrit eftirfarandi gagna skulu fylgja dýrinu til Íslands:
    • Innflutningsleyfi
    • Uppruna- og heilbrigðisvottorð og fylgiskjöl (niðurstöður blóðrannsókna ofl.)
    • Reikningur þar sem kaupverð dýrsins kemur fram. 

      Nauðsynlegt er að fyrrnefnd gögn séu fest tryggilega, í vatnsheldum umbúðum, á flutningsbúr dýrsins.
  • Verði breyting á uppgefnum komutíma dýrs til landsins skulu skilaboð þess efnis berast Matvælastofnun og/eða héraðsdýralækninum í Gullbringu- og Kjósarumdæmi.

Ítarefni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband