27.2.2013 | 20:30
Hvað á ég að gefa hundinum mínum mikið að borða til að mæta daglegri orkuþörf hans ?
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2013 | 17:39
Átt þú hund sem fer úr hárum ?
af hundur.is

Jæja, þú fékkst þér hund sem fer úr hárum, best að þú sættir þig bara við þetta í það minnsta tvisvar á ári...
Eða hvað? Er eitthvað hægt að gera við þessu?
Svarið mitt er "já"!
Það ber þó að taka fram að engin af þeim leiðum sem ég nefni hér eru til þess fallnar að þú losnir 100% við hárlos á þínu heimili, alls ekki. Hárin koma alltaf til með að fylgja hundinum þínum að einhverju leiti nema þú látir raka hann inn að skinni (sem ég mæli ekki með), en þetta hjálpar vissulega til við að halda gólfum, húsgögnum og klæðnaði "þokkalega" hárlausum.
Hér er ekki átt við óeðlilegt hárlos af völdum ofnæmis, fóður óþols eða sjúkdóma sem gætu valdið auknu hárlosi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.2.2013 | 15:56
Hundafimi Hrfi
Í kvöld sunnudag 10 feb kl 20-21 verður kynningartími í hundafimi í reiðhöll Andavara á Kjóaköllum. Kjörið tækifæri til að koma og prófa tækin og sjá hvort þér og hundinum þínum finnst ekki gaman í hundafiminni.. Tíminn kostar 700 kr (koma með pening , er ekki með posa) Væri gott ef áhugasamir myndu melda sig hér, svo ég sjái ca fjöldann sem ætlar að koma... Koma þarf með venjulega ól ekki flexi, gott hundanammi,t,d lyfrarpylsu, vera búin að hreyfa hundinn, hafa hann svangann.
Komið í góðum skóm og hlýlega klædd þetta er reiðhöll.. Meigið endilega deila þessu áfram.. Hlakka til að sjá ykkur.. Endilega dreifa þessu sem mest
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2013 | 09:18
Hundaganga verður nk laugard 09.02.
Vegna veðurs var gangan sem átti að vera sl laugardag feld niður !
Nú blásum við til gonguferðar ætlum við að hittast og ganga frá Jötun - Vélum
Nk. Laugardag 09.02.2012. Kl 11.00
gönguplan verður það sama og síðast.. Austurvegur Austur til Vesturs :)
Okkur gongufólki er boðið í kaffi spjall eftir gongu í Jötun - Vélum þar sem verða ýmsar kynningar
á hunda fóðri og klippingu á besta vininum ásamt ýmiskonar tilboðum :) :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2013 | 20:42
Hundaganga á Selfossi laugard 2 febrúar
Hundaganga á Selfossi
Halló Halló hundafólk á Selfossi og næsta nágrenni
nú er komin Febrúar og vetrarstarfið á fullu,
flautað er til hundagöngu nk laugardag 2.febrúar kl 11.00
og ætlum að hittast á
planinu vestan við Jötun-Vélar (sama stað )
Nú ætlum við að ganga Langholtið til vesturs og að Tryggvagötu og þaðan yfir á
Austurveg og þaðan sem leið liggur að upphafstaðJ
með nokkrum stoppum á leiðinni,
muna eftir að taka með kúkapoka og góða skapið
ásamt því að klæða sig eftir veðri.
Jötun-Vélar bjóða öllu göngufólki í kaffispjall eftir göngu !
Taumur hagsmunafélag hundeiganda í Árborg og nágrenni J
Sjáumst
Göngustjóri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2013 | 23:31
Sýningarþjálfun ?
Halló hundafólk á Selfossi og næsta nágrenni,
fyrirhugað er að halda sýningarnámskeið hér á Selfossi ef næg þáttaka fæst
þjálfarar verða Auður Sif og Þorbjörg :)
allar uppl í síma : 8220325
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.1.2013 | 22:48
Svo þig langar að verða ræktandi !
af hundaspjallid.is
Jæja, svo þig langar að verða ræktandi, gott hjá þér!! Ég er nefnilega ræktandi. En, áður en þú tekur endanlega ákvörðun þá eru hér nokkrir hlutir sem þú þarft að vita, og eiga.
1. Þú þarft að vera vera tilbúinn til að hreinsa upp ælu, þvag og hægðir. Nagaðir sófar, skór, borðfætur, stólfætur, dót, fjarstýringar og bækur, auk útklóraðra hurða og dyrastafa verða daglegt brauð. Og svo þarftu að vera tilbúinn til að gera þetta aftur í næsta skipti, og það næsta og svo það næsta eftir það
.
2. þú þarft að hafa sterkar taugar til að þola fnykinn þegar að fósturlát verður hjá tíkinni þinni, sem þú ert búinn að bíða í tvö ár eftir að geta fengið hvolpa hjá, og hún lætur rotnandi hvolpunum einungis hálfgengin með. Þú þarft að hafa sterkar taugar til að taka á móti vansköpuðum hvolpi og láta síðan svæfa hann.
3. Þú þarft sterkt hjarta. Vegna þess að eftir að hafa látið þér annt um hvolpana, og gert allt það sem í þínu valdi stendur til að þeir nái sem bestum og mestum þroska, þá þarftu að selja þá manneskjum sem gætu misþyrmt, barið, vanrækt eða í besta lagi ekki skipt sér af þeim. Þú þarft þetta sterka hjarta þegar keyrt er yfir hvolpinn sem þú seldir til góða heimilisins, eða þegar reynist nauðsynlegt að svæfa einhvern þeirra vegna sjúkdóma, vegna þess að þá hringir þetta góða fólk í þig tárfellandi og þá brestur þitt hjarta alveg eins og þeirra.
4. Þú þarft heilmikið pláss. Ef þú ert með bæði tíkur og hunda þá þarftu það mikið pláss að þú getir haldið þeim algerlega aðskildum á lóðatímabili. Það mikið pláss að þú getir haldið ógeldum hundum frá hvort öðrum, á meðan einhver tíkin lóðar, og svo náttúrulega til að geta haldið hvolpastóðinu frá öllu öðru. Og ekki gleyma seinustu tveim hvolpunum sem ekki hefur enn tekist að finna heimili fyrir, þú þarft pláss fyrir þá, og pláss fyrir hvolpinn sem var skilað vegna þess að eigiendurnir ákváðu að hann hentaði þeim ekki.
5. Þú þarf að geta þolað sorg og missi. Eins og þann þegar þú missir uppáhaldstíkina þína þegar hún er að gjóta hvolpunum og þú áttar þig á því að það var ákvörðun þín um að rækta undan henni sem olli því. Þú þarft líka að geta útskýrt þetta fyrir börnunum þínum sem biðu eftir hvolpunum að meðganga og fæðing getur verið hættuleg.
6. Þú þarft tillitssaman atvinnuveitanda sem skilur að þú þurftir frí eftir að tíkin dó, vegna þess að þú þarft að vera heima og gefa hvolpunum á klukkutíma fresti
. allan sólarhringinn, fyrstu sólarhringana, en svo bara á tveggja tíma fresti.
.. Bíddu nú aðeins við, segir þú örugglega núna. Hættu nú alveg! Þið ræktendur eruð sko allir eins, segið okkur einhverjar hryllingssögur til að hræða okkur frá því að rækta. Hvað um alla peningana! Ég meina, þið seljið hvolpana á alveg offjár! Þið segið þetta bara til að fá ekki samkeppni
..
Ó já, peningar, það var ágætt að þú minntist á það.
7. Þú þarft peninga. Mikið af þeim. Líklega mikið meiri en þig grunaði, sérstaklega eftir að komið hefur í ljós að atvinnuveitandi þinn er ekki svo skilningsríkur eftir allt saman. Við skulum fara í smáhugarleikfimi hérna. Dýralæknareikningar, kostaður vegna olnboga og mjaðmamyndatöku og keisaraskurðar, augnskoðun, rakkagjald, sprautur og ormalyf fyrir alla hvolpana, skoðun á alla hvolpana, gjald vegna skráningar í ættbók, gjald vegna ræktunarnafns, ferðir til og frá rakka vegna pörunar, stundum um langan veg, og aðstaða og búnaður fyrir tíkina í goti og seinna fyrir hana og hvolpana. Ekki óeðlilegt að sá kostnaður sé á bilinu 250-300 þúsund krónur, það er að segja ef ekkert óvænt kemur fyrir. Og þessu þarft þú að eiga fyrir áður en þú selur einn einasta hvolp, það er að segja ef það fæddust heilbrigðir hvolpar. Ef einhverjir hvolpar fæddust andvana, þá bætist við kostnaður af krufningu, vegna þess að þú sem ábyrgur ræktandi vilt að sjálfsögðu vita út af hverju þeir dóu.
Nú átt þú eftir að ala önn fyrir tíkinni og hvolpunum næstu 8 vikurnar, og það er mikil vinna, sérstaklega eftir að hvolparnir opna augun og fara að rannsaka veröldina í kringum sig. 8 vikna lágmarkslaun fyrir eina manneskju eru upp undir 200 þúsund krónur, og það er bara dagvinna. Ekki er óeðlilegt að reikna annað eins í yfirvinnu, eða aðra manneskju á móti manni. Svo þarf sérstakt hvolpafóður fyrir hvolpana og einnig sérstakt fóður fyrir tíkina sem er mjólkandi. Þannig að kostnaðurinn er þá kominn upp í 600-700 þúsund krónur með öllu. Verum bjartsýn og segjum að þú hafir 5 fína hvolpa, af eftirsóttu kyni, sem þú getur selt alla saman á 150 þúsund krónur stykkið, og fólkið staðgreiði meira að segja!!! Það gera 750 þúsund krónur í kassann, þannig að gróðinn af allri þessari vinnu er kannski 50 þúsund krónur, þannig að það má ekkert koma upp á, þá ertu þú umsvifalaust farinn að tapa á þessu.
Og, hérna er alls ekkert tillit tekið til kostnaðar við kaup og innflutning á undaneldisdýrum, sem er yfirleitt á milli 400-500 þúsund krónur á einstakling.
Heyrðu!! Bíddu, bíddu, hvert ertu að fara? Ég á enn eftir að segja þér frá kostnaði við að sýna hundinn, félagsgöld í HRFÍ, vinnunni við að finna rétta rakkann fyrir tíkina þína, hundaleyfisgjöld og pirruðum nágrönnum þegar þú átt erfitt með að hafa stjórn á þessum tveim sem þér tókst ekki að selja
.
_________________
Kveðja
Gromsari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2013 | 15:43
Allt til bóta !
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/01/11/matvaelastofnun_tekur_vid_dyraverndunarmalum/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2013 | 13:57
Hundaganga á Selfossi
Halló hundafólk á Selfossi og næsta nágrenni,nú er komið janúar og allir kátir eftir hátíðirnar,ætlum við í félaginu okkar að hafa hundagöngu n.k. laugardag 12. janúar kl 11.00 og er mæting á planinu vestan við Jötun Vélar( Á svipuðum slóðum og síðast ) Gengið verður Langholtið til vesturs og að Tryggvagötu síðan á Austurveg og á upphafsstað :)
Muna að taka með kúkapoka ásamt góða skapinu, já og klæða sig eftir veðri :) :)
Gamlir hundar velkomnir.
Síðan er hittingur á kaffi Krús eftir göngu og rætt verður um hlýðni námskeið og fl.
Göngunefnd :
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2013 | 22:02
Við Áramót !
Taumur-hagsmunasamtök hundaeigenda í Árborg og nágrenni
Óskar öllum hundum á svæðinu bestu óskir um gott nýtt hunda ár :)
Og eigendum þeirra líka !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)